Miss Fabulous
Öll hin bloggin mín
12.05.2006 20:02:47 / Þóra

Blogg

Er komin með nýja og betri síðu

thoraoskars.bloggar.is


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 20:18:11 / Þóra

Nýtt nýtt

farið inná
thora.minnsirkus.is/blogg
ef þetta virkar ekki copy pastið bara linkinn
nú er ég hætt að breyta

» 7 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 20:00:53 / Þóra

Fræga fólkið

ohh mér tókst að klof rífa uppáhalds gallabuxurnar mínar. Ingunn á leikskólanum tókst að plata mig í handahlaupskeppni. Ég vann, en gallabuxurnar fengu að líða fyrir það. Gallabuxur voru ekki hannaðar fyrir mig. Tips fyrir verðandi þröngra gallabuxna notendur, ekki fara í handahlaup, splitt, spígat eða gera aðrar fimleikaæfingar í gallabuxunum . Þær skemmast.

Harpa fermdist í gær, voða gaman hjá henni. Ég, Bragi, Sturla og Edda splæstum saman í sjónvarp handa henni. Hún var mjög ánægð með það. Ég bakaði þrjár súkkulaði súkkulaði kökur. Það tókst, ótrúlegt en satt. Það leit reyndar út á tímabili að ég mundi klúðra þessu. Þegar fyrsta kakan ver komin inn í ofnin fattaði ég að það voru eggjahvítur á borðinu sem átti eftir að þeyta og setja í kökuna. En við náðum að rífa kökuna út í tæka tíð og hræra hvítunum í. En þessar kökur voru samt drullugóðar. namm namm. Enda 350g súkkulaði í hverri köku

Fann ýkt semtilega síðu á netinu þá seturu inn myndir af þér og forritið segir hveri þú líkist. Fyrir neða myndina á frægu manneskjunnikemur hversumörgum prósentum þú líkist henni ég ætla bara að nefna þær sem ég líktist 72% eða meira hehe. Ég get reyndar ekki sett inn sömu myndir og birtust á síðunni því það er ekki hægt að copya þær. Þannig að þið eigið örugglega ekkert eftir að finnst þetta fólk líkt mér hehehe.En engva síður gaman að dunda sér í þessu. Þið sem ætlið að prófa Ath þið verðið að búa ykkur til notanda nafn á síðunni og fyrir neðan myndina á þeirri frægu eru örvar og ef þið flettið þeim koma upp fleiri myndir

http://www.myheritage.com/FP/Company/tryFaceRecognition.php?s=1&u=g0&lang=EN

ég er búin að vera að prófa þetta sko og ég var bara nokkuð sátt. Setti auðvitað bara inn góðu myndirnar. 

Notaði þessar og fleyri reyndar

   

Og niðurstöðurnar voru

ég fékk oftast upp þessar eða 4 sinnum 

 Rachael leigh Cook             og  Tyru Banks         

       

Fékk þessar 3

Kristin Kreuk         og  Ashley judd

          :O8bsE38Y8Sxa4M:www.girlskickbutt.com/images/profile/ashley_judd.jpg" border="0">

Og þessar 2

 aishwariya rai  og   Amanda Peet 

       :dJYsk2G-6Q_TtM:www.askmen.com/imagesvote/2001_dec/previous_winners_four/amanda_peet.jpg" border="0">

Aðrar sem komu og voru yfir 72% voru 

Beyonce Knowels ,Rachel Bilson, Angelina Jolie, Jessica Alba,Priyanka Chopra,Kylie Minogue,natalie imburglia,rachel waiz,Cristina aguilera,Audrey tautou,penelope cruz,Kristin Davis,Cameron diaz,bipabha basu,sophie ellis-bextor,brittany murphy,linda evanglasia,Elizabeth hurley,Alicia keys

Prófaði líka að setja inn dóru emmu og jónu en þið verðið bara að prufa sjálfar hehehe ég ætla ekki að segja ykkur hverjum þið líktust. En það ver ekki slæmt. enda undurfagrar stelpur þar á ferð.

Ef þið viljið boozta aðeins egóið prófiði þá.


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 20:00:03 / Þóra

Fitubankinn

Ég var að koma með alveg brilliant hugmynd!
Hvernig væri að landsspítali myndi opna fitubanka. Þeir eru með blóðbanka, afhverju ekki fitubanka. Það er fullt af fólki í heiminum sem þjáist af næringarskorti og þyrfti að þyngjast, og ég væri allveg til í að leggja mitt af mörkum til að hjálpa þeim.  Einnig væri hægt að nota fituna á öðrum sviðum. Nú eru brjóstastækkanir vinsælar. Það væri aldrei hægt að sanna það að einhver væri búin að fara í brjóstastækkun ef það væri bara fita þarna.

Ég slysaðist til að fara í ljós áðan  og brann auðvitað. Komið langt síðan ég fór í ljós síðast. Vona að ég muni ekki líta út eins og tómatur á fimmtudaginn en þá er Harpa að fara að fermast.

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 19:57:01 / Þóra

Sorry Sandra

Nú ligg ég hér uppí rúmi með Ronju mér við hlið og reyni að átta mig á þessu nýja bloggi. Ég er svo fegin að eiga Ronju að núna *takk dóra knús* Hún vill alltaf vera vinkona mín og fer aldrei frá mér til útlanda. Núna er semsagt Bragi farin til Hollands. Þá er Bragi ,Dóra , Emma , Jóna og Dísa öll í útlöndum líklega í miklu meiri sól og hita en hér. ÉG ER EIN!!!!!!Æ jæja ekkert hægt að böggast yfir því*hehem þó að ég sé búin að gera það svoldið mikið*.
 Ég vil líka nota tækifærið og biðja Söndru og Sösju afsökunar á því hvernig föstudagskvöldið fór  Það má alveg böggast yfir föstudagskvödinu. Ég er búin að reyna að hringja og hringja í þig sandra og þú svarar ekki.
En þið sem hafið gerst útlendingar megið endilega kommenta hér og láta vita af ykkur og segja mér hvað ykkur finnst um þessa síðu. Og líka þið hin sem hýrist enn á Íslandi með mér Vika í Páskaegg... Ég sit hér og stari á sex stór páskaegg ég þarf eiginlega að sitja á höndunum á mér til að ráðast ekki á þau
Skrifumst Þóra

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 20:45:00 / Þóra

thora.blog.is

Er að prófa nýtt blogg Þið finnið mig á thora.blog.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 21:24:43 / Þóra

Ég heiti Bragi bíla kall og bíla maður er

Bragi er búin að vera á flippi í dag. keypti bíl...þriðja bílinn í þesum mánuði, og sófasett, tvo leðursófa ýkt flottir. Bíllinn var Skoda Octavia "99. Þannig að núna á hann tvo bíla. Verður bara að drífa sig að selja Avensisin.
Hef eigilega ekkert mikið meira að segja

Nema...

Stelpur mig langar að fá ykkur heim!!!!!!!!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 19:49:26 / Þóra

Hár

Ok ég varð ekki ljóska... líður ykkur betur!!!! :haha: Fann sófa í dag. Allt of dýr 240 Þús m/leðri en 140 m/áklæði . Dóra viltu ekki bara sauma solís fyrir mig. Afhýðir bara hundana úti og strýkur heim til íslands með skinnið áður en Per og Cristína koma heim. Ætla bara að hafa þetta stutt.

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 20:17:39 / Þóra

Fyrir Dóru























Ég vona að myndirnar sjáist, annars látiði mig bara vita


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 21:14:48 / Þóra

Afríka, Suður -Ameríka, Svíðjóð , Ísland

Ég verð eiginlega að fara að standa mig aðeins betur í þessum blogg-málum. Nenni voða sjaldan að blogga nú á dögum. Kanski af því að það er svo lítið sem ég hef að segja frá.

Jóna hringdi í gær og hún er bara farin frá Afríku, síðast þegar ég heyrði í henni var hún í Capetown með Ínu. En nú er Ína komin heim og Jóna ef flutt á eyuna Sint Maarten, sem er hollensk nýlenda í Karabíska hafinu. Já hún er bara komin til Suður Ameríku kellingin. Komin með vinnu og alles bara. Hún ætlar reyndar ekki að vera þarna lengi, kemur á klakan í lok apríl/byrjun maí og verður þá búin að vera þarna í tvo og hálfan mánuð.

Hlakka voða mikið til að fá hana heim. Ætli það verði samt ekki erfitt fyrir hana að slíta sig frá hvítum ströndum og kokteilum, vive la vida loca. Ég er ekkert viss um að þið mynduð fá mig aftur heim úr sömu aðstæðum.

 

 



Fór í skáta party í gær. Já, það voru skáta hróp og söngvar. En það var samt fínt. Aðallega Braga vinir, en ég þekkti þó nokkur andlit þarna. Allir ekkert smá hissa á að sjá mig. Hehe.  

Fórum samt frekar snemma, ja kanski ekkert frekar snemma við fórum mjög snemma. En það var allt í lagi.

 

 



Pabbi varð 47 ára í dag, hann var mjög svekktur vegna þess að hann er ekki lengur nákvæmlega hundrað milljón sinnum yngri en jörðin. Já ég veit undarlegt, en svona er að þurfa að lifa við það að eiga jarðfræðinga sem foreldra. En ég bakaði geggjaða köku sem klúðraðist nánast ekkert (brann smá en við höfum ekkert hátt um það). Þannig að pabbinn kættist aðeins við það. Leiðin að hjarta pabba er í gegnum magann. Það eru sko orð að sönnu.

 

 



Er að spá í að fara í sumarliti. Já verða kanski bara blondína. Það eru alltof margir ornir dökkhærðir nú á dögum. Ekkert gaman að því lengur.

Hvað finst ykkur??


Já og Dóra. Fyrst að það er svona óþægilegt að vera svona há í Svíþjóð,  máttu  alveg  senda mér nokkra sentímetra  hingað til  Íslands. Er alveg til  í að taka við  3 jafnvel 5 cm.  Bara svona  fyrir þig.


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 09:28:58 / Þóra

Boring

Er veik heima eina ferðina enn :( . Með það versta sem hægt er að hugsa sér að mínu mati. Magapest!!! Oj bjakk. MÉR LEIÐIST. Á samt örugglega eftir að sofna aftur.

Íris er bara á leiðinni í leiklistarskólan sýnist mér. Hún er að fara í lokaprufuna bráðlega.Búin að komast i gegnum öll hin. Veit ekki hversu margir sóttu um núna en það komast bara 8 inn. Held samt að það séu yfirleitt um 100 sem sækja um.
Íris brjóttu fót   :haha::haha::haha:
 


Mynd af Írisi












» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 14:28:31 / Þóra

Langt uppí svíþjóð búa öll tröllin (leikskóla húmor)

Hæhæ
Heyrði í Dóru áðan. Hún var í tröllafeluleik í einhverju molli í  Svíþjóð. Leikurinn felst í að vera hærri en allir í Mollinu, en að reyna að fela sig á sama tima fyrir einhverjum brjáluðum kalli sem eltir hana útum allt. Hún var búin að prófa hinar ýmsu aðferðir, Fara inní stórverslun, inná kvennaklóset   en alltaf kom maðurinn aftur það endaði með þvi að hún breytti hárinu sínu fór úr jakkanum og settist inná kaffihús og fann fólkið sem hún var með þá losnaði hún við hann. Hún vekur sannarlega athygli þarna. Er víst á strærð við meðal sænskan karlman. Hér er hún bara talin svoltið hávaxin.

Hehem Jóna og Emma þið megið endilega láta heyra í ykkur veit ekki hvernig ég á að ná í ykkur nema í gegnum e-mail.

Ég er búin að fá nokkur atvinnutilboð fyrir sumarið. Ég er eiginlega búin að taka því að  sjá um skólagarðana í Foldahverfi.  Ekki buin að skrifa undir neitt samt. Ég er samt búin að biðja um að fá að hætta á leikskólanum viku fyrr en ég ætlaði svo ég geti unnið þar. Þær voru ýkt leiðar yfir því að missa mig  og mér leið eiginlega eins og ég var að halda framhjá leikskólanum þegar ég var að tala við Svanhildi sem sér um Skólagarða Reykjavíkur. :(:(

Ohhh ég er svo einmanna !!!! Ég ætla að fara að gera eitthvað betra en að hanga í tölvunni

Fyndin mynd


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 22:21:52 / Þóra

Þeir sem hafa áhuga

Var að setja inn myndir, fór allt í rugl hjá mér. En partyið hennar Dóru, afmæli Steinunar og leikskóla partyið er allt í sama albúmi. Djamm 2006

» 8 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 00:51:52 / Þóra

The good, the bad and the ugly

Ég keypti mér minn fyrsta bíl í dag jei :haha:Opel Corsa "97. Rauður og fínn ég set inn mynd síðar. Fékk hann á 110Þús kall. Rosa ánægð með hann, sat útí glugga í leikskólanum í dag og dáðist að honum. Mér tókst reyndar að asnast smá þegar ég fékk hann. Bragi skutlaði honum til mín kl hálf eitt en þá er veriða að svæfa börnin í leikskólanum. Hann afhendir mér fjarstýringuna og ég ýti á RAUÐA takkan ( rauðir takkar ekki góðir !!!!) og þjófavarnar kerfið fór í gang. Held að mér hafi tekist að vekja einhver nýsofnuð börn.

Dóra flýgur út eftir 7 tíma :( ég fatta það bara ekki. Hún er að fara frá mér. Og þá verða allar bestu vinkonur mínar í útlandinu. Hér ætla ég að benda á að það er ég sem er útlendingurinn. Við tókum rúnt áðan og skutluðm öllum dýrunum hennar útum allar trissur. Mér finnst hún samt ekki vera að fara út og ég er ekki að fara að hitta hana í allavega hálft ár !!!!! Ég veit þetta allveg en er bara ekki alveg búin að meðtaka þetta. :cry::cry::cry:

Árshátíð á morgun vona að ég nái að skrúbba af mér mygluna fyrir hana Verð að fara að sofa

» 8 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 17:55:30 / Þóra

Það er búið að sanna þetta sorry!!!

Konur betri ökumenn

Heilastarfsemi kvenna gerir þær að betri ökumönnum. Munurinn á heilastarfsemi kynjanna er nú talinn geta útskýrt af hverju konur valda færri slysum í umferðinni en karlar og borga tryggingaiðgjöld í samræmi við það.

Eftir ýtarleg próf og rannsóknir komust breskir sálfræðingar að því að konur eiga mun auðveldara með akstur sem krefst mikillar einbeitingar. Í ljós kom að konur áttuðu sig tvisvar sinnum oftar því en karlar þegar skipta þurfti um aksturslag, taka skyndilegar ákvarðanir og eiga við óvæntar uppákomur í umferðinni. En karlar ráða hins vegar betur við rýmishugsun og eiga því auðveldara með að leggja í stæði.

Vísindamenn skrifa þetta a hormónabúskap kynjanna þar sem karlhormónið testósterón virkjar rýmishugsun en kvenhormónið, estrógen, hraðar hugsun. Samkvæmt tölum tryggingarfélaganna velja kynin sér einnig akstur sem hæfir heilastarfsemi þeirra. Karlar keyra meira á hraðbrautum en konur meira innanbæjar þar sem aksturinn krefst meiri athygli og hraðari hugsunar.

Bretland er eitt þeirra landa sem krefja konur um lægri tryggingariðgjöld vegna minni tjónatíðni. Í samtali við Sjóvá Almennar kom fram að ekki væri sérstakt tillit tekið til kynjanna þegar kæmi að iðgjöldum, heldur miðað við tjónasögu með tilheyrandi tjónleysisafslætti og endurgreiðslum. En þó eru fordæmi fyrir kvennaafslætti hérlendis, því Tryggingafélagið Ábyrgð sem Sjóvá keypti árið 1992 var með lægri tryggingariðgjöld fyrir konur sem kölluð var Evu trygging.

Í tölum frá Sjóvá Almennum má sjá að í karlar í aldurshópnum 17-20 ollu karlmenn rúmlega sjötíu prósent slysa í þeim aldurshópi og á konur aðeins 30%. En hlutfallið breytist með hækkandi aldri en í öllum aldurshópum eiga karlar þann vafasama heiður að valda að meðaltali 20-30 prósent fleiri tjónum en konur.


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6